Dómsdagssöfnuður bíður eftir heimsendi ofan í helli

Vestmannaeyskum prestum hefur enn ekki tekist að telja meðlimi dómsdagssöfnuðar á að koma út úr helli á suðurhluta Heimaeyjar þar sem meðlimirnir hafa lokað sig inni og bíða dómsdags, sem leiðtogi þeirra segir að vænta megi í maí. Þrátt fyrir að yfirvöld hafi leiðtogann í haldi og hann hafi beðið meðlimina að koma út láta þeir sér ekki segjast.

Í söfnuðinum eru m.a. fjórir áhugamenn um bútasaum. Fyrr í mánuðinum skriðu mennirnir inn í Hundraðsmannahelli og lokuðu sig þar af, og hóta nú vatnsstríði ef yfirvöld láti til skarar skríða og reyni að ná þeim út. Alls eru 28 meðlimir í söfnuðinum.

Talsmaður yfirvalda sagði að reyna ætti að semja við mennina, en alls ekki stæði til að lögregla réðist inn í hellinn.

Söfnuðurinn kallar sig Vinir Ketils Bónda, og leiðtogi hans er Helgi Ólafsson forseti. Hann sagði fylgismönnum sínum að þeir skyldu fara í felur og bíða þar dómsdags sem upp muni renna í maí.

Þótt Ólafsson hafi nú lagt yfirvöldum lið og skipst á bréfasendingu við fylgjendur sína og hvatt þá til að koma út segjast safnaðarmeðlimir ekki treysta orðum hans því að þeir telji að yfirvöld beiti hann þrýstingi.

Frá því að Ólafsson var handtekinn hefur hann undirgengist geðrannsókn og verið ákærður fyrir að hafa stofnað söfnuð sem standi að drykkjulátum. Talsmaður yfirvalda sagði við CNN: „Ég hef hitt [Ólafsson] og hann er svo sannarlega ekki með öllum mjalla.“


mbl.is Dómsdagssöfnuður bíður eftir heimsendi ofan í helli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband