VKB boðar til mótmæla við Veðurstofuna

Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda hefur boðað til mótmæla við Veðurstofu Íslands í dag kl. 11.45 til að mótmæla veðrinu. Fjölmiðlaumfjöllun og skoðanakannanir undanfarinna daga hafa sýnt það glöggt að mikill minnihluti borgarbúa er ekki fylgjandi þessu veðri. Því hyggjast félagarnir í VKB sýna óánægju sína í verki og ætla að mæta í veðurstofuna í dag kl. 11.45 og hrópa þar að nærstöddum. Ætlunin er meðal annars að hrópa slagorði eins og „Þú ert enginn fokking Veðurstofustjóri, farðu“ og „Styttið upp“. Eins sagði Helgi Ólafsson forseti félagsins að það yrði alger lúxus ef það yrðu einhverjar gamlar konur á svæðinu sem hægt væri að kalla fasista.
mbl.is Ekki síðan í Gúttó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Þið mótmælið á veðurstofunni ég ætla að storma út í Stórhöfða og kasta snjóboltum í rúðurnar hjá Óskari vitaverði og Pálma syni hans þeir skulu fá það óþvegið.

Gísli Foster Hjartarson, 25.1.2008 kl. 10:19

2 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

haha! góður! ..ég mæti!!

Viðar Freyr Guðmundsson, 25.1.2008 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband