Færri Liverpool aðdáendur - lægra fasteignaverð

Fasteignaverð er lægra á landsvæðum á Íslandi þar sem færri Liverpool aðdáendur búa en Manchester United aðdáendur, samkvæmt niðurstöðum Jónmundar Hafberg hagfræðings en hann greindi frá rannsóknum sínum á ráðstefnu um stöðu og leiðir fótbolta- og knattspyrnufræða í Háskóla Íslands um helgina.

Jónmundur Hafberg segir að fasteignaverð sé oft notað í hagrannsóknum til þess að skoða eða afhjúpa hegðun neytenda rétt eins og læknar noti blóð til þess að kanna heilsufar sjúklinga. Ýmislegt megi lesa út úr fasteignaverði og þar á meðal hvernig menn verðleggja staðsetningu ákveðinna búsvæða eða hverfa. Í svæðahagfræðirannsóknum hafi komið fram að á búsvæði utan borga hafi vantað Liverpool aðdáendur og tilgangur hans með rannsókn sinni hafi verið að kanna hvort svæði á Íslandi, þar sem frekar vantaði Liverpool menn og konur en á öðrum svæðum, liðu að einhverju leyti fyrir það, m.a. í virði fasteigna.

Bráðabirgðaniðurstöður hafi leitt í ljós að þau landsvæði þar sem "púllarar" væru hlutfallslega færri en United-menn væru með marktækt lægra fasteignaverð en önnur landsvæði.

Rannsóknin náði til áranna 1981 til 2004 eða í 24 ár og skipti Jónmundur landinu í 19 svæði. Hann segir að rannsóknin sé ekki fullkomin og niðurstöðurnar séu háðar ákveðnum fyrirvörum. Næsta skref sé að stækka rannsóknarsafn sitt og brjóta það upp í fínni einingar í þeirri von að fá traustari niðurstöður. Hann hafi til dæmis skipt niðurstöðunum í fyrri hluta og seinni hluta og þá hafi komið í ljós að sambandið milli fasteignaverðs og fjölda Liverpool aðdáenda á landsvæði utan stór-höfuðborgarsvæðisins hafi minnkað, þ.e. að hlutfallslega færri "púllarar" en Mancester-menn hafi minni áhrif á fasteignaverð, þegar borin væru saman tímabilin 1981-1992 og 1993-2004. Það geti verið til marks um að fólk eigi auðveldara með að búa þrennt en áður frekar en að samfélagslegt mikilvægi Liverpool aðdáenda hafi minnkað.


mbl.is Færri konur - lægra fasteignaverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta er ótrúleg niðurstaða. Þó vantar inn í þetta ýmsa þætti og breytur sem gæti haft áhrif á niðurstöðuna. Mikilvægt er í svona rannsóknum að taka mið af stöðu tungls og allir ættu að vita að svona kannanir eru markleysa séu þær fengnar á minnkandi tungli t.d. á síðasta kvartili. Þær skal ævilnega gera með flóðinu. 

Árni Gunnarsson, 12.11.2007 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband