Forgangsröðun

Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að konan mín vinnur oft lengur en hún þarf og kemur heim seint og angar þá af rakspíra. Hún brjálast ef ég skoða gsm-inn hennar og fær oft dularfull símtöl í heimsímann sem hún neitar að segja frá. Hún er stundum úti á kvöldin og er þá keyrð heim af ókunnum vini.Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá hver þessi óþekkti maður væri, svo rétt áður en hún kom heim, læddist ég út og faldi mig bak við mótorhjólið mitt. Þá sá ég olíuleka á hjólinu. Og nú spyr ég, kæri vinur, er eðlilegt að það komi leki á hjól sem er aðeins búið að keyra um 20.000 km.?


mbl.is Með konuna nakta á hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband