Vitinn er í lagi

Vegna fjölda fyrirspurna í morgun ætlum við að koma því formlega á framfæri hér með að Vitinn er í góðu lagi og mun rísa mannvirkja glæsilegastur á næstu Þjóðhátíð.

 


mbl.is Eldsvoði í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fór góður biti í hundskjaft

Veit það allavega að Sindri Freyr hefur gengið með grasið í skónum á eftir henni lengi. Eða allavega hefur hann verið lengi að þvælast með þetta gras í skónum.

Sorglegt þegar svona fallegt kvennfólk gefur okkur karlþjóðina upp á bátinn eins og við leggjum okkur. Ekki það að ég hafi verið að gera mér neinar sérstakar grillur um eldheitt ástarsamand okkar í millum, en maður má alltaf láta sig dreyma.

Nú verður maður bara að láta sig dreyma um hana með öðrum kvenmanni.

Það er reyndar kannski ekki svo skelfilegur draumur ...


mbl.is Lohan vill kvænast Samönthu Ronson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið rosalega verð ég feginn ...

... þegar búið verður að frumsýna þessa bölvuði Beðmál í borginni bíómynd. Þá verður maður vonandi laus við þessar endalausu ekki-fréttir af kynlífi einnar, drykkju hinnar eða draumórum annarar úr þessum leikkvennahópi.
mbl.is Hefur áhuga á að leika á West End
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er hann ekki í sjálfsvígshugleiðingum

Greinilegt merki um sjálfsbjargarviðleitni hans að fara ekki út úr klefanum. Það er alvitað hvernig samfangar manna sem fangelsaðir hafa verið fyrir níðingsskap koma fram við þá. Maður getur rétt ímyndað sér hvað gert yrði við mann sem Fritzl, sem situr inni eftir mál sem hefur vakið jafn mikla athygli og þetta tiltekna mál. Og ekki síður sterka tilfinningu viðbjóðs hjá, að ég ætla að vona, svo gott sem öllum.

mbl.is Fritzl vill ekki fara úr fangaklefanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar finnur maður svona miðamæla ..?

Ég er einmitt með nokkra miða í vasanum sem ég þarf að láta mæla fyrir mig.
mbl.is Stálu úr stöðumælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útsýnið í Suðurey

Tveir Suðureyinga kallast á í miðri smalamennsku. Annar hrópar: "Steini, ég hef heyrt að það sé svipað að vera með rollu eins og konu. Veist þú eitthvað um það?". Þá kallar hinn ámóti "Nei. En prófaðu að tala við Óla, ég held að hann hafi sofið hjá konu".

Svo ég vitni í orð meistara Arnold

Milk is for babies. When you grow up you have to drink beer.
mbl.is Ræða hækkun á mjólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð minn góður, ég er við það að missa legvatnið

Meistarinn sjálfur á leið til landsins. Ég mæti!

Sama þótt það kostaði mig annað, og jafnvel bæði, eistun þá mæti ég.


mbl.is Bob Dylan heldur tónleika á Íslandi í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guði sé lof að þeir gáfu stefnuljós

Annars hefði getað farið mun verr.
mbl.is Tveir bílar ultu á sama stað á sama tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsileg nýting á skattfé

Á meðan ekki eru til nógir peningar til að halda úti þeim mannafla sem formaður lögreglufélagsins (eða hvað það nú heitir nákvæmlega) telur þurfa í lögregluna á Suðurnesjum, þá eru tugir lögreglumanna látnir húka í bílum á götuhornum í heila viku í von um að geta sektað einhvern ræfilinn um 5000 kall fyrir að gleyma að gefa stefnuljós.
mbl.is Fylgst verður með notkun stefnuljósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki löggiltur hálfviti

Rétt að byrja á því að taka það fram að ég hef ekki lesið umræddan leiðara Bigga í Maus. Hinsvegar hef ég lesið svarið hans Bubba, sem er að finna hér, og pistilinn sem Jakob Magnússon skrifaði inn á bloggið sitt til varnar Bubba, og er að finna hér.

Hvað varðar framlag Bubba til tónlistar á Íslandi þá held ég að það sé vart hægt að líta framhjá áhrifum Utangarðsmanna. Því þótt ég hafi einungis verið blik í augunum á pabba um það leiti sem Utangarðsmenn stigu fram á sjónarsviðið, þá hef ég haft mikið dálæti á þeim í vel yfir 10 ár. Auk þess sem ég hef aldrei fundið neitt annað íslenskt band sem gerði fyrir þann tíma svona flott kraftmikið rokk. Allavega ekki sem hefur náð því að höfða til mín. Því tel ég varla hægt annað en að líta á tilkomu Utangarðsmanna sem ákveðinn vendipunkti í íslenskri tónlistarsögu, þótt ég hafi vitaskuld ekkert fyrir mér í því annað en eign tilfinningu, og orð mér fróðari manna sem voru í hringiðu íslenskrar tónlistarinnar á þessum árum (sem sum hver má lesa í kommentum við fyrrnefnda bloggfærslu Jakobs).

En þar var Bubbi náttúrlega bara hluti af hljómsveit, og þótt hann hafi verið "frontmaðurinn" veit ég svo sem ekki hversu stórt kreatíft afl hann var innan bandsins. En auk þess að vera í Utangarðsmönnum fannst mér hann gera fanta fína hluti sem liðsmaður annarrar hljómsveitar í upphafi ferilsins. Það var Das Kapítal sem því miður gaf aðeins út eina plötu. En Egó hefur mér lengi fundist afar ofmetin grúbba. Því þó þeir hafi átt örfá þrusu góð lög, þá hafa þau flest verið ofspiluð svo svakalega í gegnum tíðina að ég á í stökustu vandræðum með að hlusta á þau klígjulaust í dag. En óháð Egóinu finnst mér vera Bubba sem "frontmaður" í hinum tveimur fyrrnefndu hljómsveitunum vera feyki nóg ein og sér til að setja hann á ákveðinn stall sem frumkvöðull í íslensku rokki.

Hvað sólóferil hans varðar þá átti hann nokkur mjög góð lög, þó nánast ekkert af því sem hann hefur gert síðustu 15 árin eða meira hafi höfðað til mín. En hvort það hafi verið eitthvað nýtt sem hann gerði á sínum tíma, eða hvort það hafi skapað honum stöðu sem "leiðandi afl" í íslensku tónlistarlífi veit ég svo sem ekkert um. En tel hinsvegar að ekki sé hægt að líta fram hjá þeirri staðreynd að hann hefur verið það stærsta í íslenskri tónlist langa lengi, og þannig ekki hjá því komist að hann væri öðrum íslenskum tónlistarmönnum fyrirmynd. Hvort sem það væri sem eitthvert "ædol" að apa eftir, eða víti til varnaðar.

Hvort hann sé "sellout" kemur arfleið hans í tónlist akkúrat ekkert við, þó það byggi ofan á þann persónuleika sem fer auðveldlega í taugarnar á mörgum, þar með talið mér. Sölumennska hans á eigin sjálfi og misjöfn sjónvarpsþáttagerð skiptir engu máli hvað varðar framlag hans til tónlistar. Enn síður ræður hrokinn eða barnaskapurinn sem birtist í orðum eins og:
"Frábið ég mér fleiri tilraunir til þess að falsa söguna frá manni sem hefur aldrei geta haldið lagi og hefur unnið sér það til frægðar að syngja falskast allra íslenskra tónlistarmanna á seinni tímum. Sá falski tónn hrakti hann frá míkrafóninum í það að gerast ritstjóri Monitors þar sem sami falski tónninn hljómar í skrifum hans"
neinu um það hvort hann hafi einhvertímann verið leiðandi afl í íslenskri tónlist. Menn sem ætla að láta taka sig alvarlega sem blaðamenn verða að geta litið framhjá persónuleikabrestum þeirra sem þeir fjalla um, þegar ætlunin er að leggja dóm á feril þeirra.

Því þótt mér þyki Bubbi í dag hrokafullur leiðindapési sem semji Bylgjutónlist á færibandi, þá breytir það engu um það sem hann gerði í árdaga síns ferils. Menn verða að geta látið pirring út í breytt lífsviðhorf eða öfund útí "monníngana" hans lönd og leið þegar fjalla á um verk hans eða feril.


mbl.is Bubbi og Biggi í hár saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Watson: Hryðjuverkamaðurinn

Mér finnst bara ekkert skrítið að Japanarnir séu farnir að skjóta á hann, og að sama skapi finnst mér skrítið að það sé ekki löngu búið að fangelsa þetta fífl, þetta er jú glæpamaður.

 Það að maðurinn skuli vera búinn að komast upp með alla þá glæpi sem að hann hefur framið er ótrúlegt.

Og alla þessa glæpi fremur hann í nafni dýraverndunar, er það eitthvað betra en að fremja glæp í nafni allah eða jesú..?

Ég ætla bara að vona að hvalveiðar við Ísland verði hafnar aftur og stórauknar, og hvað með það þó að það náist ekki að selja kjötið, það er okkur samt í hag að drepa hvalinn og bara sökkva honum.

Ég er nokkuð viss um að útgerðarmenn væru til í að leggja pening í það.

 

Og svo þurfa íslensk stjórnvöld líka að standa fast á sínu í þessum málum, ekki að vera að láta Breta eða Ástrali vera eitthvað að stjórna því hvort og hversu mikið við veiðum af hval..

 

 


mbl.is Watson sakar hvalafangara um að hafa skotið á sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VKB alltaf á undan sinni framtíð

Við bentum á þessa lausn fyrir fimm mánuðum síðan. Greinilega að Nojararnir eru að les bloggið okkar. Færsluna þar sem við töluðum fyrir neyslu hvalkjöts er að finna hérna
mbl.is Borðið hvalkjöt og bjargið heiminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnræðisreglan?

Fæ ég þá ekki frítt bensín á minn bíl? Má hið opinbera mismuna svona.

Alltílag ef þeir geta logið sig útúr jafnræðisreglunni með einhverju röfli um visthæfni og almennings hagsmuni, en hvað þá með vetni? Eða metan? Eða etanól?


mbl.is Eigendur rafmagnsbíla fái ókeypis hleðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þetta með Íslendinga og tónleika í Køben?

Veit þetta lið ekki að við fengum sjálfstæði frá þeim fyrir langa löngu? Er enn þá einhver bullandi minnimáttarkennd í gangi gagnvart Baununum? Þurfa íslenskir tónlistarmenn endalausat að vera a sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir séu svo stórir og merkilegir að þeir fái að halda tónleika í Danmörku ..?
Fái að leika við stórabróður ...


mbl.is Bubbi með tónleika í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskýrir ýmislegt

Til dæmis það af hverju kollurinn á mér er yfirfullur af tilgangslausum upplýsingum sem ég hef engan áhuga á að muna.

Líka hversvegna Sigurður Björn man öll tölublöð Séð og heyrt utan að. 


mbl.is Drukkið til að muna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mat VKB á áliti bankanna á mati Moody's

Kemur ekkert á óvart í þessu. Auðvitað eru allir "djollí og heppí" yfir þessu. Varla dytti þeim í hug að tala virði bankanna enn meira niður. Jón Ásgeir sér um það.
mbl.is Álit bankanna á mati Moody's
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetrarfærð! Á þessum árstíma ..?

Nei, því trúi ég nú bara ekki ...
mbl.is Víða vetrarfærð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herra Spock og Júró

Úff hvað eru Íslendingar að spá, það heyrði og sá það hver heilvita maður að Dr.Spock voru með besta lagið og besta sjóið á þessu kvöldi.

 

Ekki það að mér sé ekki skíííítsama hver fer fyrir okkar hönd í júró, vitandi það aða við eigum ekki sjéns, en samt finnst mér alveg lágmark að senda besta lagið, og það var sko ekki hann þarna  Friðrik Ómar, það vorui ekki HoHoHo hommarnir, og þaðan af síður þetta fyrirbæri sem að kallar sig Haffi Haff, hvað sem að það nú er..?

 Málið er að Dr. Spock ber höfuð og herðar yfir alla tónlistarmenn á Íslandi í dag, ekki bara hvað varðar spilamennsku,l heldur hafa önnur eins frumlegheit ekki sést í langan tíma....

 

Að lokum vill ég lýsa frati  á það að við, skattborgarar, séum að borga fyrir sýningarrétt á einhverri samkynhneigðri, fyrirfram-dæmdri karioki-keppni..

 

 

Lifi Doktorinn...(og þá er ég ekki að tala um Gunna)


mbl.is Eurobandið fer til Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halla þjálfi VKB?

Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda hefur í ljósi þessara frétta sótt um að fá Höllu Vilhjálms sem sérlegan leikfimikennara félagsins. Félagið hefur farið ört stækkandi á undanförnum árum, þótt það hafi ekki fjölgað mikið í því. Þess vegna þótti þeim félögum tilvalið að fá Höllu til að taka þá í kennslustund, og sparka af þeim spikið.
Forseti félagsins hefur verið sendur til Bretlands til þess að reyna að ganga frá samningum, og vonast VKB menn til þess að Halla verði mætt á klakann aftur á næstu dögum til þess að refsa þeim rækilega.
mbl.is Halla þjálfar Watford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband