Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

AFMÆLI VKB

 

Afmæli VKB
 
Ætlum að minna fólk á að við VKB menn höldum upp á afmæli félagsins næstkomandi laugardag í akóges kl:20:30. Og við viljum fagna deginum með þér.
Stórkostlegur matur úr smiðju Einsa Kalda, Skemmtiatriði á heimsmælikvarða og ball með stórhljómsveitinni Tríkot fram á rauða nótt.
Miðaverð aðeins 4000 krónur
Miðapantanir í síma 663-3493
 

 

 


Forsetinn stendur sig

það er ekki að spurja að því ... auðvitað sigrar forsetinn þetta enda ekki þekktur fyrir annað en mikla hæfileika í skák .. og já kannski danshæfileika
mbl.is Helgi Ólafsson sigraði í Djúpavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætti við Sörur vegna brjóstastækkunar

Birkir Atlason er hættur að borða Sörur vegna þess að þær valda brjóstastækkun, að því er suður - þingeyskt slúðurtímarit hefur eftir heimildamanni. Áður hafa borist af því fregnir að hann hafi slitið sambandinu vegna þess að rassinn var farinn að síga.

Alveg er óljóst hvort eða hvað er hæft í þessum sögusögnum.

En tímaritið Blikk & List segir að Birkir, sem er 25 ára gamall, hafi spurt Hannes vin sinn álits á því hvort hann ætti að fara í brjóstaminnkun, en hann hafi ráðið Birki eindregið frá því. Þrátt fyrir það hafi hann farið í aðgerðina og sé hæstánægður með árangurinn.

Birkir er nú að hugsa um að sitja fyrir nakin á myndum í Bleikt & Blátt. „Nú þegar hann er orðin frægur blikkari kemur ekki til greina að hann snúi sér aftur að þjónustustörfum,“ sagði ofangreindur heimildamaður, en Birkir var þjónustustúlka á bar í Las Vegas.

 


mbl.is Hætti með Söru vegna brjóstastækkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðugir þessir í Frjálslyndaflokknum

Á meðan að ekkert gengur að selja bolfisk, vilja þeir banna loðnuveiðar og auka þorskkvótan.
Guði sé lof að þessir menn komast aldrei í valdastöður.
mbl.is Erfiðara að selja fiskinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira nautaat takk

Ef það kemur gellunum úr fötunum, þá er ég "all for it".

Spurning um að taka þetta upp hér á landi líka, þó nokkrar íslenskar söngkonur sem ég gæti hugsað mér að sjá naktar. 


mbl.is Nakin gegn nautaati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband