Færsluflokkur: Bloggar

Magnaðir grímubúningar í Eyjum

furðukrakkar Það er hreint skelfilegt að sjá útganginn á þessum krökkum! Sérstaklega er sá sem stendur aftast hrikalegur að sjá. Eins gott að þetta sé bara grímubúningur. Hafði miklar áhyggjur af honum áður en ég las sjálfa fréttina.
mbl.is Ekki allt sem sýnist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McDonalds styrkir tónlistarmann

Forsvarsmenn vestmannaeysku gleðisveitarinnar Tríkot eru agndofa yfir þeirri ákvörðun hljómborðsleikarans Þóris Ólafssonar að semja við hamborgarakeðjuna McDonalds sem sérlegan styrktaraðila sinn. Þykja þeim það slæmar tvíbökur að tengja hamborgaraát við afrek á tónlistarsviðinu.

En Þórir hefur samið við amerískur ruslfæðismangarana um að gegn því að hann komi fram í einkennisklæðum starfsmanna McDonalds þegar hann spilar opinberlega, þá fái hann greidda fjóra BigMac á viku.

Hann er að sögn alsæll með þennan samning og hreint ekki á þeim buxunum að rifta honum, Þótt Sæþór Vídó hafi hótað að éta alla BigMac-ana frá honum.


mbl.is McDonalds styrkir afreksmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyn'að geta barn, en geta þa'ekki

Því hann er svo meiri háttar ... 


mbl.is Reyna að geta barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangsröðun

Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að konan mín vinnur oft lengur en hún þarf og kemur heim seint og angar þá af rakspíra. Hún brjálast ef ég skoða gsm-inn hennar og fær oft dularfull símtöl í heimsímann sem hún neitar að segja frá. Hún er stundum úti á kvöldin og er þá keyrð heim af ókunnum vini.Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá hver þessi óþekkti maður væri, svo rétt áður en hún kom heim, læddist ég út og faldi mig bak við mótorhjólið mitt. Þá sá ég olíuleka á hjólinu. Og nú spyr ég, kæri vinur, er eðlilegt að það komi leki á hjól sem er aðeins búið að keyra um 20.000 km.?


mbl.is Með konuna nakta á hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla lækkar hún

En það væri þó mun athyglisverðari frétt. Einhver að særa upp fallna Íraka, Zombíar út um allt ...
mbl.is Tala látinna í Bagdad hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er búið!

Jæja.. Íslendingar verða víst að hætta veiða hvali.. hvað gerum við nú?
mbl.is Stjarna á fund sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VKB boðar til mótmæla við Veðurstofuna

Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda hefur boðað til mótmæla við Veðurstofu Íslands í dag kl. 11.45 til að mótmæla veðrinu. Fjölmiðlaumfjöllun og skoðanakannanir undanfarinna daga hafa sýnt það glöggt að mikill minnihluti borgarbúa er ekki fylgjandi þessu veðri. Því hyggjast félagarnir í VKB sýna óánægju sína í verki og ætla að mæta í veðurstofuna í dag kl. 11.45 og hrópa þar að nærstöddum. Ætlunin er meðal annars að hrópa slagorði eins og „Þú ert enginn fokking Veðurstofustjóri, farðu“ og „Styttið upp“. Eins sagði Helgi Ólafsson forseti félagsins að það yrði alger lúxus ef það yrðu einhverjar gamlar konur á svæðinu sem hægt væri að kalla fasista.
mbl.is Ekki síðan í Gúttó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnalegt

þessar dramadrottningar

æi

 


mbl.is Segja atburðina í Ráðhúsinu sögulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra að þyggja en að gefa

Já, Bingi bara brattur. Segir meðal annars:

 

Það hefur gefið mér mjög mikið að finna allan þann stuðning og vináttu. Sömuleiðis er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn hefur gefið mér miklu meira en ég honum

Ætli hann eigi þar við ca. 1.000.000 kr. í fötum ..? 


mbl.is Björn Ingi hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Býflugurnar og blómin

Óli fór inn í apótek með þóri, 26 ára gömlum syni sínum. Þegar þeir áttu leið framhjá hillu sem var full af smokkapökkum spurði stráksi: "Hvað er þetta, pabbi?" - "Þetta kallast smokkar, sonur sæll. Karlmenn nota þá til að stunda öruggt kynlíf." - "Ég skil," sagði snáðinn. "Ég hef heyrt talað um þá í heilsufræði, á blaðsíðu 69, að ég held." Hann kíkir betur á hilluna og kippir upp pakka sem inniheldur þrjá smokka. "Af hverju eru þrír í pakka, pabbi?" - "Þessir eru fyrir menntaskólastráka," sagði pabbinn og brosti eins og hann væri að rifja upp gamlar og glaðar minningar. "Einn fyrir föstudag, annar fyrir laugardag og sá þriðji fyrir sunnudag." - "Kúl," sagði strákurinn. Hann rak þá augun í smokkapakka með sex smokkum og spurði fyrir hverja svona pakki væri. - "Þetta er fyrir strákana í háskólanum. Tveir eru til að nota á föstudögum, tveir fyrir laugardaginn og tveir fyrir sunnudaginn." - "Vá," sagði guttinn og það glaðnaði heldur yfir honum. - "En hverjir nota þá þessa?" spurði hann og tók upp pakka með 12 smokkum. Pabbinn andvarpaði og leit á son sinn. "Þessir eru fyrir gifta menn. Einn fyrir janúar, einn fyrir febrúar, einn fyrir mars....."
mbl.is Látið dætur mínar í friði!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband