Nytjajurtir finnast í Surtsey
13.7.2007 | 11:13
Veit það ekki, kannski að það sé einfaldlega of langt um liðið frá því að ég fékk mér síðasta kaffibollann. En mér tókst í fljótheitum að lesa yfirskrift meðfylgjandi fréttar eins og titill þessarar færslu hljómar. En mér brá auðvitað nokkuð við þær fréttir að nytjajurtir væru að finnast í Surtsey. Datt þó helst í hug að Suðureyingarnir væru farnir að rækta kartöflur þar. Enda ábyggilega fyrirlöngu komnir með leið á að éta allt rollukjötið kartöflulaust.
Nýjar jurtir finnast í Surtsey | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gullauga eða Ólafsrauðar? Afi ræktaði hvorutveggja með góðum árangri undir endanum á flugvellinum í Eyjum, svo árum skipti. Hans móttó var: "Kartöflulaus matur er nánast óæti"!
Sigríður Sigurðardóttir, 13.7.2007 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.