Kommúnistinn Óbama

Jæja, þá er Kaninn a fara að kjósa yfir sig kommúnista. Mcain og Palin höfðu rétt fyrir sér, Óbama er er bara ómerkilegur hryðjuverkamaður og marxisti. Þetta sannar það.
mbl.is Castro lofar Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veljum íslenskt

Hvernig væri að fella niður áfengisgjöld eða lækka þau töluvert á íslenskum bjór? Það er bara eðlilegt að innlendur bjór sé ódýrari en sá innflutti! Veljum íslenskt og drekkum íslenskan bjór

 

skál


mbl.is Áfengi hækkar um 5,25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrægammar?

Getur ekki verið að "frændur" okkar á Norðurlöndunum ætli sér að nýta ástandið sem hér ríki og fá FIH fyrir slikk á einhverri brunaútsölu? Það má alls ekki gerast. Ef marka má það sem kemur fram í fréttinni, þá stendur FIH traustum fótum, og virðist ætla að sigla í gegnum fjármálakrísuna. Þá er eina vitið að sitja á þessu veði, og láta það ekki frá sér fyrr en íslenska þjóðarskútan hefur rétt úr sér og gengi FIH þá væntanlega að nálgast það sem eðlilegt gæti talist.

Við megum ekki láta það gerast, þrátt fyrir erfiða stöðu sem stendur, að láta öll verðmæti frá okkur á alltof lágu verði í einhverju óðagoti.


mbl.is Lítill áhugi á kaupum á FIH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæli með Íslandsbanka

Ef þeir ætla sér að breyta nafninu á Glitni .. ekki fara út í eitthvað svona flipp eins og þeir hjá Landsbankanum.. Þið voruð með helvíti gott nafn sem mætti taka upp aftur,  Íslandsbanki.
mbl.is Landsbankinn verður NBI hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosalega er þessi Nojari abbó

„Nú á allt í einu að biðja okkur góðu grannana um lán, við heyrum ekki frá ykkur í mörg hundruð ár, þið eruð búin að vera svo svöl og vinsæl í Reykjavík og hafið ekki boðið okkur í eitt einasta skipti," segir Jespersen.

Mikið afskaplega er hann Ottó greyið fúll yfir að hafa ekki verið boðið í partýið. Svo fúll að hann grípur til þess að saka Íslendinga um dýragirnd og innræktin.
Sorrí Ottó. Þú mátt vera memm þegar við verðum búin að jafna okkur á timburmönnunum frá síðasta partýi og byrjum það næsta.


mbl.is Norðmenn draga Íslendinga sundur og saman í háði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverskonar starfsemi stunda rokkarar?

Og hvers vegna þarf sérstaklega að rannsaka starfsemi þeirra frekar en t.d. djassgeggjara?
mbl.is Mikið magn vopna finnst í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarleg snekkja það...

Hvernig hannar maður lystisnekkju í sama stíl og hótel?


mbl.is Ingibjörg hannaði lystisnekkjuna 101
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð mynd

þeir standa sig vel í því að hafa góðar og skýrar myndir með fréttunum
mbl.is Iceland Express í viðræðum um kaup á þotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú ágætt að þeir séu allir ríkisborgarar ...

... en hvaða lands?
mbl.is Á sér ekki hliðstæðu hérlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atti Katti Nóa fær tónlistarverðlaun Nóbels

En þar sem Atti er löngu dauður mun Addi Kidda Gau veita þeim viðtöku.
mbl.is Martti Ahtisaari fær friðarverðlaun Nóbels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt að redda þessu

Á þessum erfiðu tímum, meðan ómögulegt virðist vera að fá gjaldeyri inn í landið, verðum við að nýta þá stöðu sem upp er komin með falli krónunar og fá inn sem mest af erlendum ferðamönnum, sem nú borga nærri helmingi minna fyrir bjórglasið en fyrir aðeins nokkrum mánuðum.

Besta leiðin til þess að gera það er að leyfa rekstur spilavíta í landinu. Gerum landið að Vegas norðursins. Fáum ferðamennina  hingað í bíl-(eða kannski öllu heldur flugvéla)-förmum og fáum þá til þess að skilja eftir sig nánast allan sinn gjaldeyri. Höfum opið fyrir alla helstu gjaldmiðla heims í vítunum og þá munu dollararnir, pundin og evrurnar streyma inní landið.

Drastic times call for drastic measures ...


mbl.is Viðskipti milli landa verða tryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er vonandi ...

... að þeir skilji eftir einhvern gjaldeyri í landinu blessaðir.
mbl.is Erlendir fjölmiðlar streyma til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilegt að Davíð sé illa við Breta líka

Nema þetta sé bara hluti af hinu stóra og úthugsaða plani ofurskúrksins DO til þess að fella sakleysingjann JÁJ en láta alla halda að það sé ástandi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum að kenna.

Annars eru það alveg eðlileg viðbrögð manna í þeirra stöðu að reyna að kenna öllu og öllum öðrum um hvernig hafi farið fyrir rekstrinum. Þá er vitaskuld tilvalið að grípa til gömlu góðu Dabbagrýlunnar.


mbl.is Bankabjörgun kynnt í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var þá og

Enn á að sniðganga Kidda ræfilinn Sleggju. Maður fer nú bara að vorkenna honum.
mbl.is Stefnuræða forsætisráðherra flutt í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú spyr ég af fávisku minni

... og eflaust svolitlum fordómum. En eru blindir stór markaðshópur þegar það kemur að bíómyndum?
mbl.is Blindir gagnrýna nýjustu mynd Julianne Moore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar enginn að benda manninum á ...

... að Bláalónið er ekki náttúrleg uppsprett heits vatns? Það væri sennilega titlað sem umhverfisslys eð það væri að byrja að myndast í dag.
mbl.is Væntir mikils af samstarfi Íslands og Úganda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónuvernd anyone?

Halda menn virkilega að allur almenningur sé tilbúinn til þess að setja persónugreinanlegar upplýsingar um fingraför eða sjónhimnu sína í einhvern miðlægan gagnagrunn sem yrði tengdur hvaða sjoppu sem er ..?
mbl.is Heyra greiðslukort brátt sögunni til?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klukk?

Þessi síða var klukkuð (?) af Gilberti Fostberg. Klukk þetta er, að því sem ritstjórn vefjarins getur best skilið, fólgið í því að svara nokkrum tilgangslausum spurningum.
Okkur er vitaskuld ekki stætt á öðru en að verða að þessari ósk Fostersins.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.
Glasalyftingar
Danskennsla
Söngkennsla
Sundkennsla

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á.
Harley Davidson and the Marlboro Man
Pi
Killer Tomatoes Eat France!
Pledge This!

Fjórir staðir sem ég hef búið á.
Mánabar
Lundinn
Drífandi
Kráin

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.
Guiding Light
The Bold and the Beautiful
Falcon Crest
Days of Our Lives

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.
Mánabar
Lundinn
Drífandi
Kráin

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg.
http://vinirketils.com/
http://www.youtube.com/vinirketils
http://catsinsinks.com/
http://www.catsthatlooklikehitler.com/


Fernt sem ég held uppá matarkyns.
Hamborgari í Kránni
Hamborgari í Skýlinu
Hamborgari í Toppnum
Hamborgari í Tvistinum

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft.

Tinni í Sovétríkjunum
Tinni í Kongó
Tinni í Ameríku
Tinni á Kópaskeri

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka.
Egill Helgason
Össur Skarphéðinsson
Jónas Kristjánsson
Mengella


Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.
Mánabar
Lundinn
Drífandi
Kráin


Það er nú gott ...

... að þeir fengu að klára að borð blessaðir.
mbl.is Gripnir í Baulu eftir fjársvikaferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða vitleysa ..?

Leiðrétta hvað? Ég sé ekkert vitlaust við þessa frétt. Ísland er fyrir löngu orðið eins og hérað í Bandaríkjunum. Kanadýrkunin í landanum er svo yfirgengileg að þess er væntanlega stutt að bíða að Íslendingar fari að halda þakkargjörðardaginn hátíð legan. Ég meina, við höldum nú þegar upp á bæði Hrekkjavökuna og Valentínusardaginn, sem koma menningu okkar ekkert við. En við erum búin að sjá þetta svo oft í sjónvarpsþáttum og bíómyndum, að við viljum gera svona líka, alveg eins og Ross og Rachel í Friends.

Hættum að streytast á móti, og viðurkennum bara orðinn hlut. Við erum partur af Bandaríkjunum.

Nú vantar bara að fólk á Selfossi og Kirkjubæjarklaustri byrji að hlusta eingöngu á kántrý, og þá verður þetta fullkomnað.


mbl.is Unnu Bandaríkjamenn silfrið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband