Ótrúlega fáránlegt...

...sérstaklega í ljósi þess að það er ekki eins og þetta hafi verið að gerast í gær. Þetta er svo sem í samræmi við allt sem er að gerast hjá þessum blessaða samgöngumálaráðherra sem nær næstum því að toppa Sturlu Böðvarsson sem er líklega lélegasti ráðherra allra tíma en hann toppar varla Árna Matthiesen sem var allra lélegasti ráðherra allra tíma. Það virðist vera þannig að ef þetta snýr ekki að "nafla alheimsins" Reykjavík City þá nenni menn ekkert að eyða of miklum tíma í þetta. Spurning að ráða kannski einhver einstakling úr 101 Trefil á listmannalaunum til að sjá um þetta, þetta er með ólíkindum því þetta getur varla versnað...
mbl.is Reynt að semja um tilraunarekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sem betur fer...

...var þetta ekki á Íslandi því þá hefði Skattgrímur Joð tekið skattinn sinn af þeim og mjög líklega hefði þessi kona endað í farbanni og eignir hennar verið frystar fyrst að hún er ekki í hinum ofurverndaða klúbbi -> siðlausir útrásarvíkingar!


mbl.is Heiðarlegur leigubílstjóri skilaði milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá misskilningur á ferð hér...

Alltaf gaman að lesa svona fréttir ef þær eru réttar en ef farið er á vefinn sem vitnað er í kemst fólk að því þar að þarna er verið að tala um besta gítarriffið en ekki gítarsólóinn...þar er mikill munur á. Vildi bara koma þessu á framfæri til þeirra sem gera engar kröfur til tónlistar og hlusta á Bylgjuna og FM 957 að þarna er munur á...lifi rokkið!


mbl.is Hendrix á besta sólóið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NIGGA STOLE MY BIKE!

Það er greinilegt að húmor, glens og grín sé ekki uppi á borðum Þroskaþjálfafélags Íslands. Það sem virkar gjarnan í húmor er að ýkja staðalímyndir... staðalímyndir eru til vegna þess að fólk flokkar fólk í hópa og oftast nær veit það alveg hversu kjánalegt það er... Gyðingurinn er nískur, með stórt nef, svarti maðurinn kann að rappa og spilar körfubolta ásamt því að stela sjónvörpum... Arabinn ætlar auðvitað að sprengja allt í tætlur og hvíti maðurin kann ekki að dansa, er fégráðugur og valdasjúkur

 Það á að gera grín að svona staðalímyndum.. flestum finnst það fyndið þegar hlutirnir eru dregnir út sem ofurýkta mynd af samfélaginu... Það sem Katli finnst er að til að fólk með þroskahömlun sé sýnd virðing þá sé það á jafnréttisgrundvelli við alla aðra... Ef að það má ekki gera grín af þeim þá erum við að passa þá fyrir öðrum... sem er ekki að koma fram við þá á jafnréttisgrundvelli.. heldur að passa þá


mbl.is Óvirðing við þroskahefta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn Frakki eftir

Ég veit ekki hvernig reksturinn eigi eftir að ganga upp hjá Þremur Frökkum núna þegar búið er að vísa tveim þeirra úr landi...
mbl.is Tveimur Frökkum vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki eldgos í Heklu

Fréttastofa VKB hefur fyrir því öruggar heimildir að eldgos sé ekki hafið í Heklu.

Einnig telur fréttastofa rétt að taka það fram að Vestmannaeyjar eru ekki orðanr sjálfstæðar, sólin er ekki byrjuð að rísa í vestri, Ellireyingar eru ekki hættir að drekka og Suðureyingar eru ekki búnir að fá gesti í heimsókn.


mbl.is Enginn eldur í húsi Actavis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þykir mér kreppan orðin hörð

Þegar menn eru farnir að veiða strendur. Hvað á annars að gera við þær? Baka sandkökur kannski?
mbl.is Fyrstu strandveiðileyfin gefin út í dag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðlátleg ábending ...

... til blaðamanna mbl.is. Þrátt fyrir ástandið í samfélaginu er ég nokkuð viss um að SA heiti ennþá Samtök Atvinnulífsins. En ekki eins og stendur núna:

"Undirstrikað er í álitinu, að skiptar skoðanir séu innan Samtaka atvinnuleysis um aðild Íslands að ESB og áréttað að SA muni gæta hagsmuna allra aðildarfélaga á grundvelli þess."
mbl.is EES-samningurinn verði ekki vanræktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siggi harmar andlát bróður síns

Siggi Bongo vildi ekkert tjá sig um andlát bróður síns Omars Bongo en hann lést um helgina eftir að hafa verið forseti Gabon í 43 ár.

Miklar vangaveltur eru um það hvort að Siggi Bongó sem er einnig þekktur undir nafninu, Siggi Björn og Siggi Svíji, muni erfa forsetastól bróður síns og veita þar með Helga Ólafssyni mikla samkeppni í titlasöfnun en eins og alþjóð veit er Helgi Forseti VKB


mbl.is Eva Joly ber forseta Gabon ekki vel söguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðdáandi Van Damme að fara að stjórna N-Kóreu ...

... er það virkilega það sem þessi heimshluti þarf ..?
mbl.is Kim útnefnir ríkisarfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er bara að fíra upp í grillinu ...

... og finna til marineringuna. Maður verður að hafa hraðar hendur ætli maður að ná að grilla nokkrar bringur áður en þetta kvikyndi verður endanlega útdautt.
mbl.is Sést til lunda í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirsögnin villandi

Hélt fyrst þegar ég las þetta að Jóhanna Sigurðar hefði sungið Internasjonallinn fyrir sendiherrann rússneska. En svo var það bara okkar glæsilegi fulltrúi í söngvakeppni evrópskrasjónvarpsstöðva.
mbl.is Jóhanna söng fyrir rússneska sendiherrann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með suðurkjördæmi?

Svona var kosið hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi

1.sæti Ragnheiður Elín
2.sæti Árni Johnsen
3.sæti Unnur Brá
4.sæti Íris Róberts

Þarna þurfti engan kynjakvóta eða neitt rugl.. val kjósenda er skýr
Þetta þykir afturámóti ekki fréttnæmt... nema þó ef þetta hefði verið hjá VG eða Samfó


mbl.is Útkoma kynjanna ólík eftir flokkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver vill veðja ...

... að Jay Leno komi með einhvern fyrirsjáanlegan brandar um þetta og skjóti einhverju á Kevin Eubanks sem gerir hann voðalega vandræðalegan?
mbl.is Marijúananotkun eykur líkur á eistnakrabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju opinberir starfsmenn ...

... að losna loxins við Ömma. Verst að það skyldi þurfa að koma honum í ríkisstjórn til þess að honnum ditti í huga að draga sig í hlé. Svo lítur líka fastlega út fyrir að hann snúi aftur í embættið. En þetta ættu allavega að vera góðar vikur fyrir opinbera starfsmenn. Skammgóður vermir getur verið hlýr ...
mbl.is Ögmundur dregur sig í hlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingunni fannst of langt ...

... fyrir mótmælendur að fara alla leið upp á Hallveigarstíg, svo þau færðu fundinn nær þeim. Svo sirkúsinn í kringum þetta allt hjá þeim yrði örugglega nógu mikill.
mbl.is Samþykktu ályktun um stjórnarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er sá draumur úti

Ég er niðurbrotinn maður. Þar sem við Hefner deilum afmælisdegi hef ég alltaf stefnt að því að verða eins og hann þegar ég yrði afdankað gamalmenni. En nú segja þeir að þetta sé bara plat.

Nú þarf ég að fara að finna mér nýtt elliædol. Spurning um Shatner ...


mbl.is Líf Hefners sýndarmennska?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymdi símanum sínum

Heyrði það hér út í bæ að þjófurinn hafi fundist á því að hann gleymdi símanum sínum við verknaðinn... það væri fínt ef allir þjófar myndu skilja eftir svona góðar vísbendingar...

 En hvað er verið að vasast yfir því að menn fái sér í svanginn.. meina það kemur fyrir bestu menn að verða örlítið svangir á fylleríi... ég legg til að Vöruval verði bara með nætursölu svo að menn geti nú fengið sér í svanginn eftir langa drykkjunótt hehe


mbl.is Stal sér í svanginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mbl finnur upp nýja mælieiningu

Þeir eru greinilega ekki eins og fólk er flest blaðamenn mbl. Þeim duga ekki metrar, hvorki senti né milli, hvorki jardar né fet, mílur eða tommur. Nei, þeir finna upp sínar eigin mælieiningar, og mæla í myndum.
mbl.is Timburþilið lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræða unglingar míga utan í lögguna

Þetta virðist vera klassískt dæmi um viðurstyggilegt væmnismoð eins og þekkist úr rómantískum gamanmyndum. Þeir sem við fyrstu sýn virðast hata hvorn annan, elska hvorn annan í raun og sann. Og sést það best á því að núna eru vandræða unglingar í Eyjum farnir að míga utan í lögguna.
mbl.is Pissaði í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband