Forseti Íslands á hit-lista íslenskra nýnasista

Einhver hefur komið sér upp heimasíðunni skapari.com þar sem er að finna rasískan áróður ýmist á íslensku eða ensku. Meðal annars er þar að finna lista yfir nafngreint fólk, sem ekki er hægt að kalla annað en hit-lista. Í inngangi að þessum lista er birt mynd sem kennir fólki að binda hengingarsnöru og sagt "Nafnalistinn hér fyrir neðan er gerður til þess að þetta skítapakk mun ekki sleppa undan ábyrgð á gerðum sínum. Ég mun ekki gráta það ef þeim yrði stytt stundir með hönk af reipi". Þetta er ekki hægt að túlka sem annað en beinar hótanir í garð nafngreindar einstaklinga, og trúi ég því hreint ekki að eitthvað þessu líkt fái að standa óhreyft. En fólkið sem er nafngreint á þessum lista er:

Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Dorrit Moussaieff forsetafrú
Jónína Bjartmars fyrrv. umhverfisráðherra
Svanhildur Gísladóttir
Rakel Paul 34 ára
Karen Sigurðardóttir 23 ára
Pétur Marteinsson fyrrv. atvinnumaður í fótbolta
Unnur Valdimarsdóttir dósent
Gauti B. Eggertsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband