Afhverju vill þinns ekki leika við minns?

Nú hlaupa blaðamennirnir til og "klaga í mömmu" því þeir fengu ekki að "leika með stóru strákunum". Starfsfólk Valhallar skammast sín væntanlega, enda vita þau eins og er að það er ljótt að skilja útundan.

Auðvitað ráða Villi & Co. engu, og verða að tala við alla strax. Mega ekkert bara byrja á að tala við "stóru strákana" með beinu útsendingarnar. Það má ekki gleyma "litlu börnunum". Það er alltaf ljótt að græta börnin svona, svo þau þurfi að "væla í mömmu" og senda frá sér tilkynningu.


mbl.is Blaðamannafélagið sendir Sjálfstæðisflokki bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar fá þeir alla þessa fána ..?

Ég myndi allavega ekki hafa hugmynd um hvar ég gæti nálgast pakistanskan fána með svona stuttum fyrirvara hér á landi. Ætli það séu verslanir á þessum slóðum sem sérhæfi sig í sölu á þjóðfánum vestrænna ríkja til íkveikju. Fánabrennur eru náttúrlega svo vinsælt sport þarna fyrir austan, að það hlýtur að vera markaður fyrir slíkar verslanir.
Merkilegur máttur markaðarins!

Eða kannski að þeir hafi bara verið búnir að "stokka sig" svo vel upp í kringum öll lætin síðast, að þeir eigi enn ógrynni af Dannebrog á lager. 


mbl.is Mótmælendur brenndu danska fánann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina vitið

Land er dýrt en ekki loftið svo ef þú byggir upp í loftið ertu að nýta landið betur! Gunni er eini maðurinn með eitthvað vit í kollinum hérna á höfuðborgarsvæðinu!

 Meira svona takk


mbl.is Gunnar Birgisson: „Höldum okkar striki"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eniga meniga

Mig vantar meiri peninga ...
mbl.is Teiknuð Star Wars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur verður af aurunum api

r163463_602447Í þorpi einu birtist einu sinni maður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið.
Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.
Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan.
Eftir að maðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja því apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum.
Síðan hefur ekkert spurst til mannsins eða aðstoðarmannsins.
 
Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar.

mbl.is Nikkei hækkar í kjölfar Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru bollurnar

Plús aldurinn að færast yfir.. hún er náttúrulega í góðri æfingu með að halda þessum bollum uppi allt sitt líf en þyngdarlögmálið tosar í og aldurinn færist yfir.. hræddur um að þetta sé of mikið fyrir hvern sem er... Ekki einu sinni Chuck Norris myndi þola svona álag


mbl.is Parton frestar tónleikum vegna bakverkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg að verða vitlaus á þessu... Aaalveeeg

22780842Kona ein var að steikja egg handa sínum heittelskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið. "Varlega varlega...! Settu meira smjör!  Guð hjálpi mér...!  Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!""Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!Eggin munu festast!" "Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig!Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T! Konan horfði á hann og sagði. "Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?"Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum."....

Veiðisport

Hunting%20BuddiesTveir veiðimenn eru á veiðum í skógi þegar annar fellur niður og virðist hætta að anda.Félagi hans grípur farsímann og hringir í neyðarlínuna."Félagi minn er dauður. Hvað á ég að gera?" æpir hann í símann.Viðmælandinn biður hann að róa sig niður."Gakktu fyrst úr skugga um að hann sé örugglega látinn.”Þá kemur þögn og svo skothvellur."Og hvað svo," segir maðurinn svo í símann.

Vinsamleg ábending til blaðamanna mbl.is

Írland er EKKI í Englandi. Það er ekki einu sinni hluti af Bretlandi. Hef fétt af því að fólk hafi lent í veseni fyrir að segja Skotland vera í Englandi, en hvernig ætli Írarnir tækju á því að vera kallaðir Tjallar ..?
mbl.is Trapattoni á leiðinni til Írlands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammsýni Íslendinga lifir enn

Okey í fyrsta lagi hvað í andskotanum er Lýðheilsustöð að vasast í þessum málum? Ætlar þessi stofnun að vera með afskipti í öllu? við þurfum kannski í framtíðinni að lúta öllu sem þessi heilaga stofnun gefur út frá sér...

En það er óþolandi hvað skammsýni Íslendinga ætlar að viðhaldast í vegamálum... Það er allt hugsað út frá aðstæðum í dag en aldrei spáð í því að þegar framkvæmdum lýkur er allt sprungið... getum við aldrei lært af reynslunni?

Og okey 2 + 1 gefur álíka mikið öryggi og 2 + 2 en Það er ekkert allt málið.. Það þarf líka að hugsa um það að bílaumferð fer í BÁÐAR ÁTTIR... Vegirnir þurfa að anna umferðinni!! og fólk sem er að ferðast þarna mikið um skilur vel hvað ég á við... 

Svo er nú líka eitt sem er kannski hægt að koma að og tengist þessu að hluta til, núna er verið að auglýsa mjög mikið frá umferðarstofu að frekar eigi maður að stoppa bílinn og leggja sig í 15 min... Þá væri gaman að vita... Hvar á leiðinni á selfoss dettur ykkur í hug að sé hægt að stoppa bíl út í vegkanti og leggja sig? eða bara einhvern veg á Íslandi fyrir utan Reykjanesbrautina?

 


mbl.is 2+1 og 2+2: Duga þrjár akreinar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já og...?

Er þetta frétt? er ekki búið að vera mata ofan í mann að áfengi drepur ... bara hægt

 Aldeilis sem þeir þurfa að flýta ferlinu þarna niðurfrá


mbl.is Dauðarefsing fyrir að drekka áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaðir grímubúningar í Eyjum

furðukrakkar Það er hreint skelfilegt að sjá útganginn á þessum krökkum! Sérstaklega er sá sem stendur aftast hrikalegur að sjá. Eins gott að þetta sé bara grímubúningur. Hafði miklar áhyggjur af honum áður en ég las sjálfa fréttina.
mbl.is Ekki allt sem sýnist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McDonalds styrkir tónlistarmann

Forsvarsmenn vestmannaeysku gleðisveitarinnar Tríkot eru agndofa yfir þeirri ákvörðun hljómborðsleikarans Þóris Ólafssonar að semja við hamborgarakeðjuna McDonalds sem sérlegan styrktaraðila sinn. Þykja þeim það slæmar tvíbökur að tengja hamborgaraát við afrek á tónlistarsviðinu.

En Þórir hefur samið við amerískur ruslfæðismangarana um að gegn því að hann komi fram í einkennisklæðum starfsmanna McDonalds þegar hann spilar opinberlega, þá fái hann greidda fjóra BigMac á viku.

Hann er að sögn alsæll með þennan samning og hreint ekki á þeim buxunum að rifta honum, Þótt Sæþór Vídó hafi hótað að éta alla BigMac-ana frá honum.


mbl.is McDonalds styrkir afreksmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyn'að geta barn, en geta þa'ekki

Því hann er svo meiri háttar ... 


mbl.is Reyna að geta barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangsröðun

Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að konan mín vinnur oft lengur en hún þarf og kemur heim seint og angar þá af rakspíra. Hún brjálast ef ég skoða gsm-inn hennar og fær oft dularfull símtöl í heimsímann sem hún neitar að segja frá. Hún er stundum úti á kvöldin og er þá keyrð heim af ókunnum vini.Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá hver þessi óþekkti maður væri, svo rétt áður en hún kom heim, læddist ég út og faldi mig bak við mótorhjólið mitt. Þá sá ég olíuleka á hjólinu. Og nú spyr ég, kæri vinur, er eðlilegt að það komi leki á hjól sem er aðeins búið að keyra um 20.000 km.?


mbl.is Með konuna nakta á hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla lækkar hún

En það væri þó mun athyglisverðari frétt. Einhver að særa upp fallna Íraka, Zombíar út um allt ...
mbl.is Tala látinna í Bagdad hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er búið!

Jæja.. Íslendingar verða víst að hætta veiða hvali.. hvað gerum við nú?
mbl.is Stjarna á fund sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VKB boðar til mótmæla við Veðurstofuna

Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda hefur boðað til mótmæla við Veðurstofu Íslands í dag kl. 11.45 til að mótmæla veðrinu. Fjölmiðlaumfjöllun og skoðanakannanir undanfarinna daga hafa sýnt það glöggt að mikill minnihluti borgarbúa er ekki fylgjandi þessu veðri. Því hyggjast félagarnir í VKB sýna óánægju sína í verki og ætla að mæta í veðurstofuna í dag kl. 11.45 og hrópa þar að nærstöddum. Ætlunin er meðal annars að hrópa slagorði eins og „Þú ert enginn fokking Veðurstofustjóri, farðu“ og „Styttið upp“. Eins sagði Helgi Ólafsson forseti félagsins að það yrði alger lúxus ef það yrðu einhverjar gamlar konur á svæðinu sem hægt væri að kalla fasista.
mbl.is Ekki síðan í Gúttó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnalegt

þessar dramadrottningar

æi

 


mbl.is Segja atburðina í Ráðhúsinu sögulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra að þyggja en að gefa

Já, Bingi bara brattur. Segir meðal annars:

 

Það hefur gefið mér mjög mikið að finna allan þann stuðning og vináttu. Sömuleiðis er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn hefur gefið mér miklu meira en ég honum

Ætli hann eigi þar við ca. 1.000.000 kr. í fötum ..? 


mbl.is Björn Ingi hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband