Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Púað á Þóri Ólafsson á tónleikum

Gestir á tónleikum Tríkot á slútti kökubasars kvennfélagsins í Hafnarfirði voru lítt hrifnir af frammistöðu hljómorðsleikarans Þóris Ólafssonar í gærkvöldi. Einhverjir yfirgáfu tónleikana og aðrir púuðu. Var Þórir ofurölvi á tónleikunum og þurfti ítrekað stuðning hljómsveitarmeðlima þar sem hann stóð varla í fæturna og sofnaði í tvígang fram á hljómborðið.

Fyrr um daginn hafði hann heimsótt kærustuna í fangelsi og tileinkaði henni lögin á tónleikunum meðal annars með því að breyta hljómagangi laga.

Kærasta Þóris, Helena Steinadóttir, var handtekin fyrir viku síðan vegna meintrar líkamsárásar sinnar og vinkonu á barþjón einn sem átti að bera vitni gegn Helenu í sakamáli sem nú stendur yfir. Eftir líkamsárásina eru þær stöllur einnig grunaðar um að hafa reynt að múta fórnarlambinu með hálf étnu Snickers og flötum bjór gegn því að hann félli frá fyrri vitnisburði.


mbl.is Púað á Amy Winehouse á tónleikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafsson hlaut vafasaman heiður á Eddunni

Helgi Ólafsson er ekki beinlínis kvikmyndastjarna en hann hefur eigi að síður fengið þann vafasama heiður sem fylgir titlinum Kaldasta manneskjan á Eddunni. Það er vefritið mbl sem setti Helga forseta efst á listann yfir 50 kaldlyndasta fólkið í 101.

Listinn samanstendur að sögn blaðsins af valdaminnsta fólkinu í stjörnuelítu Íslands sem vekur minnstan áhuga og vekur sömuleiðis minnstan innblástur til mótvægis við alla listana yfir fallegasta, mest kynæsandi fólkið í kaffihúsaþorpinu mikla

Helgi kemur oft fyrir í kvikmyndum í einhverri mynd, hvort sem það eru heimildarmyndir eða skopstælt útgáfa af honum í grínmyndum og því á það fyllilega rétt á sér að setja hann á blað með kvikmyndastjörnunum segir á mbl.

„Hinn öflugi HÓ á jafnmikinn rétt á að vera kvikmyndahetja eins og hver annar einræðisherra og harðstjóri,” segir Þórir Ólafsson talsmaður VKB þegar haft var samband við samtökin nú rétt fyrir hádegi.

Annað sætið hreppti Einsi Kaldi en hann er einmitt úr Eyjum líka... Hann er vanari að verma efstu sætin á vinsældarlistum sem þessum.

Aðrir sem komast á blað yfir kalda fiska eru Sylvester Stallone og Shaquile o'neal sem þykja hafa staðið sig illa í nýlegustu kvikmyndunum sínum.


mbl.is Forsetinn hlaut vafasaman heiður í Hollywood
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti Íslands á hit-lista íslenskra nýnasista

Þetta er óhuggnaleg síða, og hreint með ólíkindum að hatur í líkingu við það sem kemur þarna fram skuli geta þrifist í jafnfámennu samfélagi og við lifum í hér á landi. Á umræddri síðu er meðal annars að finna lista yfir nafngreint fólk, sem ekki er hægt að kalla annað en hit-lista. Í inngangi að þessum lista er birt mynd sem kennir fólki að binda hengingarsnöru og sagt "Nafnalistinn hér fyrir neðan er gerður til þess að þetta skítapakk mun ekki sleppa undan ábyrgð á gerðum sínum. Ég mun ekki gráta það ef þeim yrði stytt stundir með hönk af reipi". Þetta er ekki hægt að túlka sem annað en beinar hótanir í garð nafngreindar einstaklinga, og vona ég svo sannaerlega að einhver verði látin svara fyrir þessi orð. En þeir einstaklingarnir sem eru nafngreindir á þessum lista eru:

Ólafur Ragnar Grímsson - forseti
Dorrit Moussaieff - forsetafrú
Jónína Bjartmars - fyrrv. umhverfisráðherra
Svanhildur Gísladóttir
Rakel Paul 34 ára
Karen Sigurðardóttir 23 ára
Pétur Marteinsson - fyrrv. atvinnumaður í fótbolta
Unnur Valdimarsdóttir - dósent
Gauti B. Eggertsson
Hreiðar Eiríksson
Þorkell Ágúst Óttarsson

Þessi færsla birtist í svo til sömu mynd áður á þessari síðu. En mér þótti viðeigandi að tengja hana við þessa frétt.


mbl.is Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásgeirsson skotinn í poppstjörnu

Þjónustufulltrúinn Borgþór Ásgeirsson á að vera skotin í bandarísku poppstjörnunni Christinu Aguilera. Hins vegar á Aguilera unnusta, pródúserinn Jordan Bratman.

Ásgeirsson hefur áhuga á að fá Aguilera til þess að sitja fyrir með sér í auglýsingaherferð fyrir átthagaskírteini VKB, en hann hefur setið í stjórn félagsins.


mbl.is Aniston skotin í ruðningskappa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færri Liverpool aðdáendur - lægra fasteignaverð

Fasteignaverð er lægra á landsvæðum á Íslandi þar sem færri Liverpool aðdáendur búa en Manchester United aðdáendur, samkvæmt niðurstöðum Jónmundar Hafberg hagfræðings en hann greindi frá rannsóknum sínum á ráðstefnu um stöðu og leiðir fótbolta- og knattspyrnufræða í Háskóla Íslands um helgina.

Jónmundur Hafberg segir að fasteignaverð sé oft notað í hagrannsóknum til þess að skoða eða afhjúpa hegðun neytenda rétt eins og læknar noti blóð til þess að kanna heilsufar sjúklinga. Ýmislegt megi lesa út úr fasteignaverði og þar á meðal hvernig menn verðleggja staðsetningu ákveðinna búsvæða eða hverfa. Í svæðahagfræðirannsóknum hafi komið fram að á búsvæði utan borga hafi vantað Liverpool aðdáendur og tilgangur hans með rannsókn sinni hafi verið að kanna hvort svæði á Íslandi, þar sem frekar vantaði Liverpool menn og konur en á öðrum svæðum, liðu að einhverju leyti fyrir það, m.a. í virði fasteigna.

Bráðabirgðaniðurstöður hafi leitt í ljós að þau landsvæði þar sem "púllarar" væru hlutfallslega færri en United-menn væru með marktækt lægra fasteignaverð en önnur landsvæði.

Rannsóknin náði til áranna 1981 til 2004 eða í 24 ár og skipti Jónmundur landinu í 19 svæði. Hann segir að rannsóknin sé ekki fullkomin og niðurstöðurnar séu háðar ákveðnum fyrirvörum. Næsta skref sé að stækka rannsóknarsafn sitt og brjóta það upp í fínni einingar í þeirri von að fá traustari niðurstöður. Hann hafi til dæmis skipt niðurstöðunum í fyrri hluta og seinni hluta og þá hafi komið í ljós að sambandið milli fasteignaverðs og fjölda Liverpool aðdáenda á landsvæði utan stór-höfuðborgarsvæðisins hafi minnkað, þ.e. að hlutfallslega færri "púllarar" en Mancester-menn hafi minni áhrif á fasteignaverð, þegar borin væru saman tímabilin 1981-1992 og 1993-2004. Það geti verið til marks um að fólk eigi auðveldara með að búa þrennt en áður frekar en að samfélagslegt mikilvægi Liverpool aðdáenda hafi minnkað.


mbl.is Færri konur - lægra fasteignaverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðsynlegt...?

Eru svona boðorð ekki bara nauðsynleg í  virðulegum karlaklúbbum eins og mafíunni..?
mbl.is Lögreglan finnur 10 boðorð mafíunnar á Sikiley
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnuslys í grunnskólanum í Þorlákshöfn

Vinnuslys varð í grunnskólanum í Þorlákshöfn í dag. Að sögn lögreglu
missti kennari, sem var þar að kenna stærðfræði í fimmta bekk, vasareikni á annan fót sinn, með þeim afleiðingum að hann fann til sársauka í litlutá. Kennarinn leitaði til læknis á
heilsugæslustöðinni í Þorlákshöfn og hafði læknirinn þar samband við
sjúkrabíl sem flutti kennarann á slysadeild í Reykjavík. Að sögn lögreglu
fannst vasareiknir kennarans skammt frá slysstað, en hann mun vera lítillega skemmdur.
mbl.is Vinnuslys í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti Íslands á hit-lista íslenskra nýnasista

Einhver hefur komið sér upp heimasíðunni skapari.com þar sem er að finna rasískan áróður ýmist á íslensku eða ensku. Meðal annars er þar að finna lista yfir nafngreint fólk, sem ekki er hægt að kalla annað en hit-lista. Í inngangi að þessum lista er birt mynd sem kennir fólki að binda hengingarsnöru og sagt "Nafnalistinn hér fyrir neðan er gerður til þess að þetta skítapakk mun ekki sleppa undan ábyrgð á gerðum sínum. Ég mun ekki gráta það ef þeim yrði stytt stundir með hönk af reipi". Þetta er ekki hægt að túlka sem annað en beinar hótanir í garð nafngreindar einstaklinga, og trúi ég því hreint ekki að eitthvað þessu líkt fái að standa óhreyft. En fólkið sem er nafngreint á þessum lista er:

Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Dorrit Moussaieff forsetafrú
Jónína Bjartmars fyrrv. umhverfisráðherra
Svanhildur Gísladóttir
Rakel Paul 34 ára
Karen Sigurðardóttir 23 ára
Pétur Marteinsson fyrrv. atvinnumaður í fótbolta
Unnur Valdimarsdóttir dósent
Gauti B. Eggertsson


Líka að láta taka myndir af sér nærbuxnalausri ..?

Nei, ég bara spyr ...

mbl.is Britney segist gera allt fyrir börnin sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skarpur þessi dómari

112 er náttúrlega miklu minna en 180. Hvernig dettur mönnum í hug að taka skírteinið af manni sem ekur bara á 112 ??

Svo var líka gott veður. 


mbl.is Hraðaksturinn „ekki jafn slæmur“ í mílum talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband