Vísbending um að blaðamenn mbl.is séu EKKI gáfaðri en apar

Enn á ný gera blaðamenn mbl.is sig seka um að fjalla á barnalegan og óupplýstan hátt niðurstöður vísinda rannsókna. Snúið er út úr fréttinni til þess að fá sem mest „krassandi“ fyrirsögn, þó fyrirsögnin tengist í rauninni ekkert því sem verið var að rannsaka. Hingað til var sú hugmynd uppi innan félagsvísindanna að afkvæmi manna og greindustu apa þroskist eins upp að ákveðnum aldri, en eftir það taki manns afkvæmin stórt stökk fram á við í þroska, og skilji apa afkvæmin eftir. Þessi rannsókn sýndi hinsvegar fram á að fyrr skyldi á milli barna og apa en áður var talið.

En blaðamönnum mbl er svo sem vorkunn, það virðist enginn metnaður vera í fréttaflutningi af vísindarannsóknum í íslenskum fjölmiðlum, hvorki hjá þeim né annarstaðar. Þessi frétt er að öllum líkindum þýdd beint upp af erlendum fréttavef, án þess að blaðamaðurinn hafi gefið sér nokkurn tíma til að kynna sér málið neitt frekar sjálfur. Sem er annað sem einkennir mbl.is full oft.


mbl.is Vísbending um að menn séu gáfaðri en apar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yo....

Blökkumaður....vinsamlegast..


Á hún þetta bara ekki skilið, held að þetta sé helv$"%s kvenkyns hundur..........



Ég á nú nokkuð skrautlega nágranna, en ekki fyrir mitt litla líf tými ég gemsanum mínum í andlitið á þeim.


mbl.is Foxy Brown dæmd í árs fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við sem nærumst á ótta - Samsærispælingar!

Maður fer að velta fyrir sér hvað nákvæmlega rekur fjölmiðla áfram til að fjalla um sívaxandi "stríðsástand" í höfuðborginni... Þegar í raun glæpum hefur fækkað halda fjölmiðlar áfram að fjalla um stórhættulegt ástand og undarlegt nokk eru það yfirleitt fréttamiðlar 365 sem halda uppi geðveikri æsifréttamennsku.. Það líður varla sá dagur að ekki komi dramatísk frétt á stöð tvö um hvernig allt er að fara til fjandans í miðborginni... Og hvað gerir þetta? Jú býr til ótta! 

Ég hef nú bara strax orðið vitni að því að þetta sé farið að virka þegar aðili sagðist (og í alvöru meinti það) vera öruggari úti á spáni í hörðu lögregluríki þar heldur en í miðborginni... þessi aðili fer aldrei niður í miðbæ rvk um helgar. Borgarfulltrúar éta þetta upp, heldra fólk sem býr upp í grafarvogi og í hafnarfirði hringir inn í þjóðarsálina og lýsir yfir vaxandi áhyggjum a ástandinu... þessir aðilar fara aldrei niður í miðborgina og sjá sjálf ástandið!! Í raun hafa fæstir aðilar sem lýsa áhyggjum af ástandinu komið nálægt miðborginni um helgar... Sem er í raun undarlegt

 Þetta er í raun ekkert gríðarlega flókið og  hefur verið stundað mikið í gegnum tíðina... stór dæmi og kannski full dramatískari en þetta má nefna þegar Hitler kveikti í Reichstag til þess að geta sett á fót löggjöf sem tók burt réttindi borgaranna... allt í nafni þess að berjast gegn kommahryðjuverkamönnum... Nærtækari dæmi má sjá hjá Bush sem tók burt réttindi borgaranna til að berjast gegn hryðjuverkaógninni.. og fólk samþykkir það... það gerir það í alvöru vegna þess að fjölmiðlar pumpa það ótta... 

OK... þetta eru afar stór dæmi en í grunninn er það sama sem er að baki... ótti við eitthvað skapar tækifæri til að koma með eitthvað sem á að "vernda" borgaranna sem þurfa akkúrat enga vernd... Svo þá er það stóra spuringin.. Hvað er það sem menn vilja koma á?

-Vopnaðri lögreglu?

-meira vald lögreglu

-Loka áfengisverslunum niðrí miðbæ

-minnka afgreiðslutíma pöbbanna?

-Hækka verð á áfengi eða jafnvel bara banna það alfarið

Þetta er spurningin... hvert er svarið?

 


mbl.is Góður árangur af auknu eftirliti lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskýrir ýmislegt

Samkvæmt þessu eru karlmenn rúmum 4% fjölmennari en kvenfólk á landinu. Það útskýrir væntanlega lánleysi mitt í kvennamálum. Eða ætli þar sé frekar um að kenna holdafari mínu og almennum ófríðleika ..?

Erfitt að segja ... 


mbl.is Íslendingar orðnir 311 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverfur með lægra áfengisverði

Allt svona bras og vesen bruggara verður varla þess virði ef áfengisverð væri minna hér á landi. Krakkar eru svo að kaupa þetta sull af misgáfulegum mönnum sem eru að brugga þetta í bílskúrnum hjá sér... 

 


mbl.is Bruggari handtekinn á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bull er þetta eiginlega?

Það er álíka mikil frétt í þessu eins og að trén felli lauf á haustin. Þetta hefur gerst núna til margra ára að umferðarþunginn á höfuðborgarsvæðinu aukist rosalega á haustin þegar skólarnir byrja. Það væri frekar vit í því að flytja fréttir af því ef þetta gerðist ekki, það væri eitthvað óvænt, eitthvað sem væri áhugavert að heyra um í fréttum, eitthvað sem á erindi við almenning.

Svona eins og það að Siggi Björn hafi verið edrú alla síðustu helgi ...


mbl.is Morgunumferðin þung í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrelt á morgun

Nei nei kannski ekki á morgun...  En annars, það er alltaf gaman að sjá svona þegar svona ný tækni kemur... Ég er viss um að fólk eigi eftir að hlæja að þessu apparati eftir 4-5 ár. Það er nú ekki langt síðan að USB lykill sem þykir bara eðlilegt að sé hátt í 2 gb að stærð í dag var kynnt í blaðinu "lifandi vísindi" fyrir ekki lengri en 4-5 árum þá sem einhver framandi tækni... Þá voru að koma 128 mb USB lyklar sem fólk hélt ekki vatni yfir...

 já tæknin er skemmtileg og alveg magnað hvað maður tekur ekki eftir því hversu hratt hún þróast... 


mbl.is Þriðja kynslóð farsímakerfisins tekin í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppnaðist vel - Til hamingju Ennemm

Það er ljóst að nýja auglýsing Símans hefur heppnast mjög vel. Mikið umtal meðal bloggara og komnar tvær fréttir um auglýsinguna á mbl.is mest lesna fréttavef landsins. Svo efast ég ekki um að mikið hefur verið karpað á kaffistofum landsins en þó örugglega mest hlegið enda er þessi auglýsing bráðfyndin!

Sama hvort að fólki finnst hún góð eða vond er ljóst að auglýsingin sjálf virkaði! Er það ekki einmitt hlutverk auglýsinga? að vekja umtal og segja "þeir" ekki að slæmt umtal er engu að síður umtal og eigi að fagna því... Ég efast stórlega um að fólk fari að segja upp áskriftum hjá Símanum vegna þessarar auglýsingar né að fyrirtækið muni bera skaða af...

Svo er nú spurning hvort menn vilja röfla meira yfir þessu svo það endi með að Ennemm verði dregið fyrir einhverja nefndina... spurning spurning

 


mbl.is Miklar umræður á meðal bloggara um nýja auglýsingu Símans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver teiknaði þetta eiginlega ..?

bakkafjara

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Varð það nokkuð sami maður og teiknaði Smáralindina ..?


mbl.is 200-300 bíla umferð á dag vegna Bakkafjöruhafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt upp hend sem heldur að þessi ljóshærða á myndinni hafi verið að keyra ...

En er það samt ekki eiginlega "óverload" af klisjum? Kvenmaður í umferðinni, ljóska og Hafnfirðingur ...
mbl.is Bakkaði á fjölbýlishús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonum það besta - en sleppum miðlum

Maður vonar það besta að þeir félagar finnist...

 Ég vona þó að það sé ekki gert næst að hlusta á miðla, hvort sem þeir eru útlenskir eða íslenskir... það er eingöngu verið að eyða mikilvægum tíma í það að eltast eftir það sem fólk sem kallar sig miðla telur sig vita um hvar menn séu niðurkomnir.

Mér fannst það alveg hreint ótrúlegt að menn hafi virkilega notast við miðla í þessari leit... á hvaða öld lifum við?

 

Svo er annað sem maður fer að hugsa út í .. það er spurning með að svona lagað endurtaki sig ekki, þetta reyndar gerist alltof oft... en sem betur fer þá finnast ferðalangar í flestum tilvikum aftur... Það er spurning um að fólk verði að ráða leiðsögumann ef það ætlar eitthvað svona flakk... eða amk reyna koma því til skila til útlendinga hversu hættulegt það er að flækjast um hálendi Íslands... Ætli það sé eitthvað skipulag í kringum þetta? 


mbl.is Leit haldið áfram á Svínafellsjökli; pokar fundust nálægt fjölfarinni gönguleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir þurfa ekkert Gerrard

Það getur ekki annað verið hægt en að vinna lið sem heitir Tú-Lús ...

mbl.is Gerrard ekki með gegn Toulouse
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rohypnol/Flunitrazipam

Rakst á þetta eftir ákveðnum krókaleiðum í morgun.

Það er óhuggnalegt til þess að vita að hægt sé að kaupa Rohypnol í apótekum hér á landi án mikillar fyrir hafnar. En samkvæmt því sem síðuskrifari sá sem ég vísa í hér að ofan segir, þá hafa í stuttri stikkprufu hjá henni þrír læknar verið tilbúnir til þess að ávísa á hana Flunitrazipam (sem er samheitalyf Rohypnol) eftir stutt samtal í gegnum síma. Svonalagað er virkilega sláandi, og til skammar fyrir íslenskt samfélag.

Á síðu sinni leitast umræddur síðuskrifari eftir hjálp annarra moggabloggara við að koma Flunitrazipam út af lyfjaskrá á Íslandi, og þannig úr almennri sölu. Okkur í VKB er bæði ljúft og skylt að taka þátt í þvílíkum þjóðþrifa aðgerðum, og birtum því hér stutta áskorun af áður nefndri síðu, með smávægilegum breytingum.

 

Svefnlyfið Flunitrazepam hefur enga jákvæða virkni fyrir þá sjúklinga sem neyta þess fram yfir þá tugi annara svefnlyfja sem eru á lyfjaskrá.

Virka efnið í lyfinu hefur þó þau neikvæðu áhrif að af því skapast algjört minnisleysi og getuleysi til að greina umhverfi sitt. Þessi atriði hafa valdið því að lyfið hefur þann vafasama heiður að vera þekkt sem "nauðgunarlyf" (Date-Rape). Lengi hefur tíðkast, hér á landi sem annars staðar, að lauma því í drykki fólks til að ná fram áðurnefndu minnis- og getuleysi og ef allt fer samkvæmt áætlun fylgir nauðgun í kjölfarið. Það er nánast ógerlegt fyrir fórnarlamb þessa að kæra til lögreglu sökum minnisleysis.

Árið 2006 var Flunitazepam ávísað í ríflega 11.000 skömmtum. Þar sem lyfið hefur enga sérstöðu til bóta fyrir þá sjúklinga sem nota það fer ég þess á leit að Flunitrazepam verði tekið af lyfjaskrá hér á landi hið snarasta.

Öryggi ástvina okkar hlýtur að vega þyngra en svo að nauðsyn teljist að hafa þetta hættulega lyf í umferð.

 


Villi vindhani

Skelfing er að horfa upp á kallinn. Kominn í sömu vindhana pólitíkina og Samfylkingin. Einn daginn trúir hann því að allir séu hræddir við miðborgina og finnist rónar ógeðslegir. Skellir skuldinni á kæli í bakherbergi í ríkinu í Austurstræti. Svo fattar hann að það sé ekki öllum í nöp við að ógæfufólk né gæfusamt fólk (og allt þar á milli) fá sér kaldann bjór yfir daginn, þá allt í einu skiptir þetta engu máli lengur. Ég hélt að Villi væri öflugri pólitíkus en þetta, og fastari á sínu en svo að hann færi að elta eitthvað ímyndað almenningsálit og fölmiðlavæl. 

Þó ég hafi sjálfur tekið þátt í hneykslunaröldunni sem reið yfir bloggheima á minni eigin síðu, þá finnst mér Villi ræfillinn síst koma betur út með því að snúast á tíeyring þegar hann sér að meiri hlutinn hefur ekki þá skoðun sem hann hélt hann hafa. 


mbl.is Borgarstjóri: Mín vegna má setja kælinn upp aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nenna ekki að lesa fréttir

Það er fyndið að lesa moggablogg... flestir þeir sem skrifa um fréttirnar nenna yfirleitt ekki að lesa fréttirnar, heldur vilja frekar blogga um fyrirsagnir eða fyrstu 2-3 línurnar af fréttinni... Leti eða bara vilja koma sér á framfæri með misgáfulegum athugasemdum um lífið og tilveruna.

 Það kemur fram mjög greinilega að hafnað var einkaleyfi á orðunum brekkusöngur og þjóðhátíð.. enda eru þau orð einum of algeng og víðsvegar notuð til að hægt sé að setja einkaleyfi á þau. Húkkaraball er afturámóti ekki notað almennt nema yfir þetta eina ball sem er haldið einu sinni á ári í vestmannaeyjum, fimmtudag fyrir þjóðhátíð. Annað er varðar sektir þá stendur greinilega neðarlega í fréttinni: "Friðbjörn sagði að ekki stæði til að beita sektum eða fangelsisvist fyrir notkun á orðinu Húkkaraball en að þeim þætti vænt um að menn bæðu um leyfi." En þetta virðist líka hafa farið fram hjá bloggurum... Núna þegar þeir hafa einkaleyfi á húkkaraball er eitthvað skrítið að þeir vilji að menn biðja um leyfi að nota það? til hvers annars að vera óska eftir einkaleyfi? Held að ÍBV hafi ekki verið að fara út í þetta til að vera með leiðindi og lögfræðing tilbúinn í startholunum að lögsækja alla sem voga sér að nota þetta orð yfir ball hjá sér.... 

Maður spyr sig líka, er fyrirtækjum og einstaklingum bannað að sækja um einkaleyfi á einhverju??  Það virðist fara gríarlega í taugarnar á fólki að þeir hafi sótt um leyfi... af hverju? ég bara skil ekki af hverju þeir mega ekki reyna að sækja um þetta einkaleyfi.. langsótt en þeirra val að sækja um... Þeir sjá einhvern hagnað í því að fá einkaleyfi á þessu. 

Að lokum þakka ég ÍBV fyrir framúrskarandi skipulagningu og vel heppnaða útihátíð eins og hún gerist best! 
mbl.is Eyjamenn þeir einu sem mega halda Húkkaraball
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggbloggs grátkórinn hefur upp raust sína

Enn og aftur fer grátkór moggabloggara að væla. Nú eru allir yfir sig hneykslaðir yfir löggunni. Allir tilbúnir til þess að verja gjörðir konu sem ekur undir áhrifum, og getur ekki sýnt sóma sinn í því að iðrast þess þegar til hennar næst. Heldur veitist að, rífur kjaftið og hótar lögreglu og heilbrigðisstarfsfólki sem er að reyna að vinna vinnuna sína, svo að hægt sé að bæta öryggi hins almennaborgara.

Það er svo sem vafa lítið ýmislegt sem þarf að athuga við þetta mál. Það að  ekki skuli vera til verklagsreglur um hvernig svona lagað sé framkvæmt er í raun fáránlegt. Mér þykir líka mjög vafasamt að karlmenn skuli vera viðstaddir svona aðgerðir gagnvart kvenmanni. En að allur þessi skari moggabloggara skuli vera tilbúinn til þess að hlaupa upp til handa og fóta til varnar svona siðblindri manneskju sem hefur ekki einu sinni manndóm í sér til þess að iðrast afbrota sinn þegar runnið er af henni. Heldur kærir sömu einstaklinga og hún veittist að fyrir að hafa framkvæmt líklega óþægilega og að einhverju leiti niðrandi verknað á henni, sem hún hefði auðveldlega getað komið sjálf í veg fyrir með því að sýna smá samstarfsvilja við lögregluyfirvaldið. Finnst mér hreint fáránlegt.

En það sýnir kannski gleggst þá undirliggjandi óvild sem býr í hjörtum margra Íslendinga í garð yfirvalds, og hvað Íslendingar virðast margir hverjir trúa því heitt og innilega að allir sem eitthvert yfirvald hafa séu vondir menn að upplagi.


mbl.is Konu haldið niðri og þvagsýni tekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Við í VKB þurfum þá ekki að hafa áhyggjur af tekjunum í framtíðinni.

Nema kannski Sindri.


mbl.is Fallegt fólk þénar mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mesta anti-climax íslenskrar tónlistarsögu

Sorrí Þórir, en það er staðreynd. Frammistaða Stuðmanna sem lokaband þessara tónleika er mesta anti-climax íslenskrar tónlistarsögu. Allir hinir listamennirnir sem komu fram á þessum tónleikum stóðu sig mjög vel. Allir skiluðu þeir sínu mjög vel, óháð því hvort maður fílaði þá eða ekki. En þessi óskapnaður sem Stuðmenn buðu upp á er ekki nokkrum manni bjóðandi. Stuðmenn eiga að skammast sín fyrir þetta, og ég vona að yfirmenn KB Banka sýni sóma sinn í því að lítilsvirða ekki íslensku þjóðina með því borga þeim fyrir þetta. Stuðmenn ættu að vera sektaðir fyrir svona ósiðsamlega framkomu á fjölskylduskemmtun.

mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitar vekja lukku

Að sjálfsögðu var það viti sem vann þetta eru glæsilegustu mannvirkin á Íslandi. Það er alltaf gaman þegar vitar fá sínar viðurkenningar.
mbl.is Viti hreppti verðlaunin í sandkastalakeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðin er á enda

Bræðrafélagið VKB gefur út Þjóðhátíðarheftið Þroskahefti núna í kvöld og er það þriðja heftið sem félagið hefur gefið út.. Fyrri tvö tölublöðin er hægt að skoða á netinu. Blaðið er afar veglegt í ár og er alls 28 bls af stórkostlegri skemmtun! Blaðinu verður dreift í öll hús í Vestmannaeyjum í kvöld og verður einnig hægt að nálgast heftið í helstu sjoppum bæjarins. Þeir sem eru það óheppnir að komast ekki til eyja þurfa þó ekki að örvænta, blaðið kemur von bráðar á netið.

 

VKB Bóndabruggið er einnig komið og er bjórinn hinn glæsilegasti eins og sést.

Annars óskar VKB landsmönnum öllum gleðilegrar þjóðhátíðar.

 VKB bjór


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband